Fyrsti sigur Fjölnismanna - unnu á Króknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2011 20:56 Mynd/Valli
Fjölnismenn fögnuðu sínum fyrsta sigri í Iceland Express deild karla í vetur í kvöld þegar þeir unnu átta stiga sigur á Tindastól á Sauðárkróki, 97-89. Tindastóll hefur þar með tapað þremur fyrstu leikjum sínum á tímabilinu þar af tveimur þeirra á heimavelli. Nathan Walkup skoraði 24 stig og tók 11 fráköst fyrir Fjölni í kvöld og Árni Ragnarsson var með 23 stig. Trey Hampton skoraði 28 stig fyrir Tindastól. Fjölnismenn voru frábærir í fyrsta leikhlutanum sem þeir unnu 30-19 og voru mest komnir fimmtán stigum yfir, 30-15. Ægir Þór Steinarsson og Nathan Walkup skoruðu báðir 10 stig í leikhlutanum. Fjölnir skoraði þrjú fyrstu stig annars leikhlutan en Stólarnir með Trey Hampton í fararbroddi unnu næstu fjórar mínútur 15-2 og minnkuðu muninn niður í aðeins eitt stig, 34-35. Fjölnisliðið var síðan 48-44 yfir í hálfleik þar sem Walkup var kominn með 16 stig og 8 fráköst en Hampton var búinn að skora 16 stig. Fjölnir var skrefinu á undan í þriðja leikhlutanum og leiddi að lokum 70-69 fyrir lokaleikhlutann sem leit út fyrir að verða mjög spennandi. Þar voru hinsvegar gestirnir úr Grafarvogi mun sterkari og tryggðu sér með því góðan útisigur.Tindastóll-Fjölnir 89-97 (19-30, 25-18, 25-22, 20-27)Tindastóll: Trey Hampton 28/8 fráköst, Maurice Miller 18/14 fráköst/10 stoðsendingar, Svavar Atli Birgisson 13, Helgi Rafn Viggósson 10/10 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 6, Friðrik Hreinsson 5, Hreinn Gunnar Birgisson 5, Þröstur Leó Jóhannsson 4/4 fráköst..Fjölnir: Nathan Walkup 24/11 fráköst, Árni Ragnarsson 23/5 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 16/4 fráköst, Calvin O'Neal 11/4 fráköst/7 stoðsendingar, Arnþór Freyr Guðmundsson 10/6 fráköst, Jón Sverrisson 7, Trausti Eiríksson 6/4 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Fótbolti Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira