Jafntefli hjá Valenica og Barcelona í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2011 21:56 Victor Valdes og Barcelona-vörnin fékk á sig tvö mörk á fyrstu 23 mínútunum í kvöld. Mynd/AP
Valencia er áfram á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-2 jafntefli við Spánarmeistara Barcelona á heimavelli í kvöld. Barcelona og Real Madrid töpuðu því bæði stigum í kvöld og hvorugt liðið er því meðal efstu þriggja liðanna eftir fjórar umferðir. Cesc Fabregas tryggði Barcelona jafnteflið með marki á 77. mínútu sem kom eftir sendingu frá Lionel Messi en Argentínumaðurinn lagði upp bæði mörk Barcelona í þessum leik. Valencia náði forystunni á 12. mínútu þegar Eric Abidal varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir fyrirgjöf Jérémy Mathieu frá vinstri. Pedro Rodriguez jafnaði metin aðeins tveimur mínútum síðar eftir frábæran undirbúning frá Lionel Messi. Pablo Hernández kom Valencia hinsvegar aftur yfir á 23. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Jérémy Mathieu en vinstri bakvörður Valencia var því búinn að leggja upp tvö mörk á fyrstu 23 mínútum leiksins. Barcelona og Real Madrid töpuðu bæði stigum í gær því Real Madrid náði aðeins markalausu jafntefli á móti Racing Santander. Valenica er eitt á toppnum með 10 stig en Málaga og Real Betis hafa bæði fengið níu stig. Barcelona er í 4. sæti með 8 stig og Real madrid er í 8. sætinu með 7 stig.
Spænski boltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Sjá meira