Aron og félagar í AGF í annað sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2011 20:40 Aron Jóhannsson í leik með íslenska U-21 landsliðinu fyrr í þessum mánuði. Mynd/Vilhelm
AGF vann í dag góðan 2-0 útisigur á HB Köge í dönsku úrvalsdeildinni og kom sér þar með upp í annað sæti deildarinnar. Íslenskir knattspyrnumenn voru víða í eldlínunni í dag. Þetta var fyrsti leikurinn í níundu umferð og er AGF með fimmtán stig, rétt eins og Álaborg sem á leik til góða eins og flest önnur lið í deildinni. FC Kaupmannahöfn virðist óstöðvandi en liðið hefur aðeins tapað tveimur stigum til þessa og er með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar. Aron Jóhannsson kom inn á sem varamaður í hálfleik en bæði mörk AGF voru skoruð af peter Graulund í fyrri hálfleik. Í Svíþjóð tapaði Halmstad fyrir Kalmar á útivelli, 1-0. Jónas Guðni Sævarsson lék fyrstu 80 mínúturnar í liði Halmstad sem er í neðsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með fjórtán stig - sjö stigum á eftir næsta liði. Þá var einnig spilað í Belgíu í kvöld. Arnar Þór Viðarsson lék allan leikinn fyrir Cercle Brugge sem gerði markalaust jafntefli við Lierse í kvöld. Bróðir hans, Bjarni Þór, á við meiðsli að stríða og kom ekki við sögu er lið hans, Mechelen, steinlá fyrir Mons á útivelli, 5-1. Jón Guðni Fjóluson sat sem fyrr á bekknum er Beerschot vann 2-0 sigur á Zulte-Waregem. Jón Guðni hefur ekkert fengið að spila í deildinni síðan hann kom til liðsins frá Fram fyrr í sumar. Cercle Brugge er á toppi deildarinnar með fjórtán stig að loknum sjö leikjum. Mechelen er í áttunda sætinu með tíu stig en Beerschot í því tíunda með níu stig.
Fótbolti Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira