Halldór: Týpískur Leiknissigur Hjalti Þór Hreinsson skrifar 4. september 2010 17:30 Sigursteinn Gíslason, þjálfari Leiknis. Fréttablaðið/Valli
Halldór Kristinn Halldórsson, fyrirliði Leiknis, segir sigurinn á HK í dag vera týpískan Leiknissigur. Liðið er á toppi deildarinnar með Víkingum en hefur aðeins skorað 30 mörk í sumar. Eitt mark var nóg í dag, það skoraði Kjartan Andri Baldvinsson eftir góðan undirbúning Arons Fuego Daníelssonar. Leiknismenn fengu urmul færa og hefðu átt að vinna stærra. "Það eru stigin sem telja. Við erum alltaf spenntir að fá hemaleiki, við höfum unnið alla leiki á heimavelli, fengið 30 stig af 30 og aðeins fengið á okkur tvö mörk. Þetta var ekki vel spilaður leikur en það hefði ekki verið ósanngjarnt að vinna þetta fjögur eða fimm núll." "Við fengum fullt af færum sem við hefðum átt að nýta okkur. Við vorum klaufar að skora ekki meira. Við fengum fín færi í fyrri hálfleik en vorum smá stund að ná okkur í gang í þeim seinni. Svo vorum við miklu betri." "Þetta var týpískur Leiknissigur, þetta var alveg frábært. Þetta eru skemmtilegustu sigrarnir," segir Halldór. Framundan er þriggja liða barátta Víkings, Leiknis og Þórs um tvö laus sæti í Pepsi-deildinni. Aðeins tvær umferðir eru eftir. "Þetta verður svakaleg barátta, það er ekkert annað á dagskrá en að fara upp hjá öllum þessum þremur liðum. Það er gott að geta treyst á sjálfan sig, ef við vinnum okkar leiki komumst við upp," sagði Halldór.
Íslenski boltinn Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Reese rífur í sig metin Körfubolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira