Björgólfsfeðgar ekki kallaðar fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis 6. janúar 2010 18:38
Hvorki Björgólfur Guðmundsson né Björgólfur Thor Björgólfsson hafa verið kallaðir fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið. Björgólfur eldri mun hafa sent nefndinni gögn að eigin frumkvæði en þeir hafa hvorugir verið yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina á aðdraganda og orsökum bankahrunsins. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis á að koma út 1. febrúar. Hlutverk nefndarinnar er meðal annars að meta hvort einhver sem tengist bankahruninu hafi brotið af sér, en þá er verið að tala um meiriháttarbrot. Skýrslan mun nú þegar vera um 1500 blaðsíður. Meðal þess sem er til umfjöllunar er útlánastarfsemi bankanna, Icesave málið frá a til ö og atburðarrásin síðustu daga og vikur fyrir bankahrun. Heimildir fréttastofu herma að hvorki Björgólfur Guðmundsson né Björgólfur Thor Björgólfsson, eigendur Landsbankans, hafi verið kallaðir fyrir nefndina. Björgólfur eldri var sem kunnugt er formaður bankaráðs Landsbankans og Björgólfur Thor jafnframt stærsti eigandi Straums, sem komst í þrot á síðasta ári. Þrátt fyrir að nefndin hafi ekki séð ástæðu til að kalla þá inn, þýðir það ekki að þeir séu undanskildir í skýrslunni. Mun Björgólfur eldri hafa sent inn gögn um sín mál að eigin frumkvæði. Annað gildir um bankastjórana Sigurjón Árnason og Halldór J. Kristjánsson, sem nefndin tók ítarlega skýrslu af. Þeir stýrðu bankanum þegar Icesave reikningarnir voru settir á legg. Gera má ráð fyrir að flestum yfirheyrslum sé lokið, enda verið að leggja lokahönd á skýrsluna.
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira