Braust inn til barnsmóður sinnar 30. september 2010 03:30 Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.
Ríkissaksóknari hefur ákært fyrir Héraðsdómi Reykjaness rúmlega fertugan karlmann fyrir húsbrot, líkamsárás, eignaspjöll og fleiri brot. Manninum er gefið að sök að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili barnsmóður sinnar í Njarðvík og hrint henni í gólfið. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa í kjölfar þess ekið bifreið sinni á bifreið konunnar sem lagt var í stæði við heimili hennar, þannig að bifreiðin skemmdist að framan. Eftir þetta ók maðurinn frá Njarðvík til Reykjavíkur á miklum hraða og sinnti ekki ítrekuðum stöðvunarmerkjum lögreglunnar. Hann gaf sig ekki fyrr en bifreið hans hafnaði á brúarstólpa Breiðholtsbrúar. Loks er maðurinn ákærður fyrir skjalafals með því að falsa nafn barnsmóðurinnar sem seljanda á tilkynningu um eigendaskipti bifreiðar og framvísa síðan tilkynningunni hjá Aðalskoðun hf. þannig að nafngreindur sonur hans varð skráður fyrir bifreiðinni. Barnsmóðirin krefst þess að maðurinn verði dæmdur til greiðslu bóta að fjárhæð tæplega sex milljónir króna. - jss
Fréttir Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira