Lýðræðishreyfingin býður Magnús Ólafsson velkominn 3. apríl 2009 09:28 Magnús Ólafsson
Ekki er farið í manngreinarálit hjá xP Lýðræðishreyfingunni. Hjá xP eru allir velkomnir. Það eru síðan kjósendur sjálfir sem velja sína þingmenn af lista xP í persónukjöri og engin önnur uppröðun fer fram á listum Lýðræðishreyfingarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lýðræðishreyfingunni nú í morgun. Þar segir ennfremur að þetta sé ólíkt vinnubrögðum Borgarahreyfingarinnar þar sem sjálfskipaðir leiðtogar sem enginn hafi kosið um skipað sjálfa sig í efstu sætin fyrir luktum dyrum í flokksræðilegu bakherbergismakki. „Þegar Ástþór Magnússon lagði til lýðræðisleg vinnubrögð var hann í orðsins fyllstu merkingu borinn út af fundum hreyfingarinnar í Borgartúni og leikhúsinu Iðnó. Nú hefur Borgarahreyfingin hafið ófrægingarherferð gegn Magnúsi Ólafssyni leikara sem einnig vildi að menn sameinuðu kraftana til að koma á lýðræðisbreytingum. Lýðræðishreyfingin býður Magnús Ólafsson leikara velkominn og er honum boðið sæti á lista xP í Kraganum þar sem kjósendum yrði síðan gefinn kostur á að ákveða það hvort þeir vilja Magnús til starfa á Alþingi Íslendinga. Feiknalegur meðbyr er með framboði xP Lýðræðishreyfingarinnar og búið að safna öllum tilskyldum fjölda meðmælenda í báðum Reykjavíkurkjördæmum. Nú er verið að klára undirskriftarsöfnun í öðrum kjördæmum og hefur annar hver maður sem leitað er til skrifað undir stuðningsyfirlýsinguna," segir í tilkynningunni.
Kosningar 2009 Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira