Samfylkingin að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur 26. apríl 2009 00:51
Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að Samfylkingin sé með kosningunum nú að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur í íslenskum stjórnmálum. Þetta kom fram í viðtali við hann í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins. Dagur benti á að samfélagið væri enn að vissu leyti í sárum eftir áfallið í haust og það væri verkefni næstu ríkisstjórnar að fá sem flesta í bandalag um aðgerðir til þess að taka á vandanum. Útlit er fyrir að Samfylkingin verði stærsti stjórnmálaflokkur landsins eftir kosningarnar. Aðspurður sagði Dagur að hann teldi að tvennar breytingar yrðu með kosningunum. Samfylkingin væri að stíga á svið sem kjölfestuflokkur í íslenskum stjórnmálum og væri að treysta böndin við nýja hópa. Þá taldi hann að félagshyggja væri að fá þá stöðu hér á landi sem hún hefði haft víða annars staðar á Norðurlöndum og væri grundvöllur þess styrks sem þar væri. „Þetta er auðvitað þróun sem er gríðarlega mikið okkur að skapi," sagði Dagur. Hann benti hins vegar á að verkefnin fram undan væru ekki einföld en mynda þyrfti bandalög alls staðar í samfélaginu, ekki bara í stjórnmálum.
Kosningar 2009 Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira