Aftur tapaði Boston 27. desember 2008 12:48 Kevin Garnett og félagar í Boston töpuðu öðrum leiknum í röð eftir nítján leikja sigurgöngu þar áður
Boston tapaði óvænt öðrum leik sínum í röð í NBA deildinni í nótt þegar liðið lá fyrir Golden State á útivelli 99-89. Boston virtist hafa leikinn í hendi sér en heimamenn, undir forystu Stephen Jackson, unnu fjórða leikhlutann 35-17 og tryggðu sér sigur. Jackson sneri aftur eftir að hafa misst úr fjóra leiki vegna meiðsla og skoraði 15 af 28 stigum sínum í fjórða leikhlutanum. Marco Belinelli skoraði 22 stig. "Ég óttaðist að þetta gæti gerst eftir að við unnum nítján leiki í röð. Þegar ég sá að við vorum að hitta vel og höfðum 12 stiga forystu - ég óttaðist eitthvað svona," sagði Doc Rivers þjálfari Boston eftir leikinn. "Þeir (Golden State) duttu í stuð og þá er erfitt að eiga við þá." Paul Pierce var atkvæðamestur hjá Boston með 21 stig og Kevin Garnett 14, en þetta var fimmta tap Boston gegn Golden State á útivelli og það tólfta í fimmtán síðustu viðureignum liðanna í Oakland. Þetta var í fyrsta skipti í vetur sem Boston tapar tveimur leikjum í röð, en liðið tapaði fyrir LA Lakers á útivelli að kvöldi jóladags. New Orleans stöðvaði tveggja leikja taprhinu með því að leggja Houston á heimavelli 88-79. Chris Paul skoraði 26 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir heimamenn en Yao Ming var með 19 stig og 12 fráköst hjá Houston. Allen Iverson skoraði 22 stig og sigurkörfuna þegar Detroit lagði Oklahoma naumlega 90-88. Utah lagði Dallas á heimavelli 97-88 þrátt fyrir að vera án þriggja stiga- og frákastahæstu manna sinna, en Dirk Nowitzki var rekinn af velli eftir átök við Matt Harpring í upphafi síðari hálfleiks. Úrslitin í nótt: Golden State Warriors 99-89 Boston Celtics Utah Jazz 97-88 Dallas Mavericks New Orleans Hornets 88-79 Houston Rockets Denver Nuggets 105-101 Philadelphia 76ers New Jersey Nets 87-95 Charlotte Bobcats Detroit Pistons 90-88 Oklahoma City Sacramento Kings 101-107 Toronto Raptors New York Knicks 107-120 Minnesota Timberwolves Memphis Grizzlies 108-105 Indiana Pacers Miami Heat 90-77 Chicago Bulls
NBA Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira