Byggja stíflu og bjarga hafinu 9. apríl 2007 11:59 Aralhafið, eða Araleyðimörkin, sést á þessari mynd. MYND/AFP
Stjórnvöld í Kasakstan fengu í gær vilyrði fyrir 128 milljóna dollara láni frá Heimsbankanum (e. World Bank) til þess að fylla Aralhafið á ný. Peningarnir verða notaðir til þess að hleypa af stokkunum öðrum hluta verkefnis sem miðar að því að koma sjó aftur í Aralhafið. Sameinuðu þjóðirnar segja að hvarf Aralhafsins sé eitthvert mesta og stærsta umhverfisslys sögunnar. Þetta verkefni mun þó verða til þess að hafið snýr aftur. Saga Aralhafsins nær aftur til ársins 1970. Þá var það fjórða stærsta innhaf heimsins. Stjórnvöld í Sovíetríkjunum ákváðu þá að veita tveimur meginám, sem runnu í Aralhafið, á bómullarakra í Úsbekistan og Kasakstan. Aralhafið fór þá að minnka og hvarf nær að lokum. Eyðimerkur mynduðust þar sem áður voru fiskimið, hagkerfið hrundi, lífkerfið brást og þúsundir þurftu að yfirgefa heimahaga sína. Árið 1990 var aðeins fjórðungur Aralhafsins eftir og brugðu stjórnvöld í Kasakstan þá á það ráð að reisa stíflu sem skipti hafinu í tvennt. Vatn fór þá að safnast saman og hefur hafið stækkað um nærri 40 prósent síðan þá. En suðurhluti hafsins, sem er í Úsbekistan, er enn að minnka. Lánið sem vilyrði fékkst fyrir í gær á því að nota til þess að byggja aðra stíflu sem á að bjarga suðurhlutanum. Fréttavefur BBC skýrir frá þessu.
Erlent Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Sjá meira