Kertasalat Ragga Kjartans 2. ágúst 2007 08:30 Ragnar Kjartansson útbjó salat sem hann lærði í námi sínu við Húsmæðraskólann. Það er kennt við kerti, þó því hafi verið fleygt á tökustað að því svipaði óneitanlega til ákveðins líkamshluta. Vísir/Valli
Í næsta þætti af Mat og lífsstíl heimsækir Vala Matt myndlistarhjónin Ragnar Kjartansson og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. „Þau eru að slá í gegn út um allan heim með frumlegum listaverkum sínum og gjörningum, og það má eiginlega segja að heimsóknin til þeirra hafi verið hálfgerður gjörningur,“ sagði Vala og hló. „Þau bjuggu til mjög skemmtilegan bröns fyrir okkur. Raggi bjó til rétt sem hann lærði í Húsmæðraskólanum, en hann var fyrsti karlmaðurinn sem lærði við þann skóla. Það er náttúrulega ótrúlega skemmtilegt – og líkt honum,“ sagði Vala. Kertasalatið úr Húsmæðraskólanum var afar skemmtilegt, að sögn Völu. „Svo kom það líka dálítið á óvart að þessi blanda var bara alveg glettilega góð,“ sagði hún og hló við. Kertasalat Salatblöð Ananashringir Bananar Majónes Kirsuber Eitt salatblað er sett á hvern disk, og ananashringur lagður ofan á. Hálfum banana stungið í gatið og skorið aðeins ofan af honum. Majónesklípa sett ofan á bananann og kórónað með kirsuberi.
Grín og gaman Salat Uppskriftir Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið