Biljónsdagbók 3.6. 2007 3. júní 2007 00:01 OMXI15 var 8.178,27 í morgun, þegar ég bað Halla að ganga frá yfirtökutilboði í Reyktjaldagerðina, og S&P500 var 1.503,23 þegar Iwaunt Moore hringdi frá London og sagði að ég yrði að koma strax út til að róa útlendu fjárfestana í Asian Viking Ventures. Ég sagðist þurfa að ræsa áhöfnina og yrði kominn út á Reykjavíkurflugvöll eftir 30 mínútur. Ég sæi nýju einkaþotuna mína út um stofugluggann á Smáragötunni. Ég sagði þetta við Iwaunt af því að í hálft ár er ég búinn að láta hann og aðra útlenda bissness partners halda að ég hafi einkaþotu til umráða. Það gefur allt aðra attitjúd. En ég hefði ekki átt að vera svona fljótur á mér. Ég treysti því að geta fengið þotu lánaða hjá Tóta eða Gussa en þeir voru báðir úti á þotunum sínum, Maggi þurfti að nota sína þotu eftir hádegi og Glitnisþotan var með einhverja síós og stelpur að spila golf á Jersey. Spila golf!! Það var ekki einn einasti þoturæfill á stæðinu úti í Vatnsmýri. Shitt! Ég sá allt í einu fyrir mér að þurfa að fljúga með áætlunarrellu til London! Það er hrikalegt fyrir stórmógúl í útrásinni, mann sem undirklassasmápeð í íslensku viðskiptalífi eiga að óttast og virða. Ég hringdi í Iwaunt Moore og sagði að þotan mín væri í klössun, það yrði að fresta fundinum. Það var útilokað. Fjárfestarnir voru lagði af stað í sínum einkaþotum frá Jersey. Búnir með sínar 18 holur geri ég ráð fyrir! Ho-ho! Mallí spurði hvers vegna ég væri svona fölur. Ekki skrýtið að ég væri fölur!! Það er vissulega auðveldara að láta sig hverfa í Leifstöð eftir að hún var stækkuð, maður sleppir lánsinu, skýst inn á klósett ef maður sér einhvern, sem maður vill ekki hitta, og hleypur síðastur um borð. En það sér mann alltaf einhver og flugfreyjurnar þekkja alla íslenska stórkalla í sjón. Neyðarlegast samt að koma á fund með mógúlum í London í leigulímúsínu frá Heathrow. Maður missir allt o þorítí. Þeir taka svoleiðis smákall ekki alvarlega. Iwaunt Moore hringdi eftir hádegi og sagðist sjá til fjárfestanna niðri á Park Lane. Ég bað hann að segja þeim að ég hefði verið kvaddur skyndilega á fund í Sjálfsmínbanka til að ganga frá stóru láni sem ég ætlaði að nota í yfirtökutilboðið fyrir Asian Viking Ventures. Ég bauð þeim gistingu á Hilton við hliðina. Þeir féllust á að bíða til morguns. Gussi er búinn að lofa mér þotunni sinni upp á æru og trú. En ég verð ná mér í einkaþotu. Þegar ég samþykki lánið handa mér í fyrramálið bæti ég við það fyrir þotu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun