Biljónsdagbók 20.5 20. maí 2007 00:01 OMXI15 var 7.981,15 á fimmtudagsmorgun, þegar ég pantaði fjórar heilsíður í blöðunum, og Dow Jones stóð í 13.468,03 þegar Geir og Imba Sól opinberuðu leynilega trúlofun sína og ég varð að afpanta þessar auglýsingar. Ég ætlaði að skora á Sjálfstæðisflokk og Framsókn að halda áfram að byggja upp gott þjóðfélag fyrir skapandi kapítal. Ég var of seinn. Stjórnarslitin eru disaster! Ég sem hélt að Geir og Grani væru að spúna í góðum gír í stjórnarráðinu. Mér leið eins og Steingrími útundan. Við Baddi fengum lánaða þotuna hjá Jóa og reyndum að jafna okkur með exklúsivv eskort og mass as á lúxushóteli í London. Við jöfnuðum okkur ekki neitt. Þegar við komum heim í gær vorum við í framan eins og Steingrímur, gráir og stífir eins og hafragrautur sem einhver hefur gleymt í ísskápnum. Það eru miljarðar í húfi! Skilja menn það ekki?! Fólk eins og við Baddi getur flogið út á einkaþotunum með alla sína peninga og aldrei sést meir. Ekki þannig að stjórnmálamenn ráði einhverju eftir að við í grúppum og bönkum og gömlum sambandsklíkum erum búnir að fá það sem við vildum fá hjá íhaldinu og framsókn. Hún er bara eitthvað svo mikið dressman þessi tilfinning að hafa hvunndagslega krata með ódýr bindi og dinglandi lokka í niðurdregnum eyrnasneplum að þvælast fyrir uppbyggingu og útrás. Svo á eftir að einkavæða virkjanirnar. Nú veit enginn hvort við Hámi fáum tækifæri til að nota Sjálfsmínbanka og Energroup til kaupa íslenska vatnsorku á botnprís. Ég hafði mikið fyrir auglýsingunni sem aldrei birtist. Það átti að vera stór litmynd og standa undir í fyrirsögn: „Biljón hvetur B og D til að starfa áfram saman í ríkisstjórn." Ég hafði fyrst verið að hugsa um að nota mynd af íslensku landslagi - frá Þingvöllum, af Herðubreið eða af Guðna Ág. Svo datt mér í hug að væri sterkara að hafa mannsmynd, t.d. af Jóni „eigi skal víkja" Sigurðssyni (ekki af Jóni „ekkert stopp", núna Jóni „stopp"). Loks féllst ég það með Mallí að væri sterkast að nota mynd af sjálfum mér. Auglýsingar með myndum af fólki, sem almenningur treystir, eins og til dæmis Lalla Jóns, eru miklu áhrifaríkari. Ég er viss um að sterk skilaboð frá mér á fjórum heilsíðum hefðu knúið menn til að halda áfram ríkisstjórnarsamstarfinu. Og það hefði ekki staðið á Sjálfsmínbanka að liðka fyrir uppbyggingunni. Fyrir mér hefðu þeir jafnvel mátt skipa hvaða djakkass sem er í embætti ríkissaksóknara. En ég var of seinn að auglýsa. Þetta er búið. Bakherbergin eru auð. Í bili. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun