Harmóníku-fólkið 10. maí 2007 00:01 Ég er enginn rasisti en sígaunar eru algjör úrhrök; þjófóttir, lygnir, undirförlir og hreinlega sori jarðar! Við eigum hikstalaust að reka þetta jafnóðum úr landi! Þetta sagði eldri herramaður í heita pottinum í gær og fékk nokkuð jákvæð viðbrögð frá sam-pottungum sínum. Ég vissi ekkert hvað ég átti að segja, horfði á sveskjurnar á höndum mínum og varð hugsað til Tinnabókarinnar Vandræði Valíu. Þar var einmitt sígaunahópur sem Kolbeinn kafteinn var viss um að hefði stolið gimsteinum Valíu, en Tinni, alltaf jafn réttlátur, hafði trú á sígaununum og sannaði að lokum að þeir voru ágætis fólk. Þrátt fyrir aðdáun mína á Tinna lagði ég ekki í að fara að rífast við karlinn heldur hugsaði bara: svona var þá stemningin í Þýskalandi þegar Hitler tók við völdum. Síðasta haust talaði ég við harmóníkukarl sem harkaði fyrir framan Bónus. Hann var einn á ferð og átti markaðinn. Hann var gífurlega ánægður með land og þjóð þrátt fyrir að vera skítkalt þar sem hann hékk þarna. Sagðist flækjast á milli stórverslana allan daginn og á góðum degi þéna 2000 kall sem nægði til að kaupa mánaðarskammt af mat handa fjölskyldunni úti í Rúmeníu. Hann var á leiðinni heim með afraksturinn en ætlaði að koma aftur sem fyrst því að hans mati væri Ísland kjörland fyrir svona gigg, a.m.k. á meðan hann væri einn um hituna. Goðsögnin um kjörlandið virðist hafa spurst út í harmóníkuheiminum miðað við nýjustu tíðindi. Fréttamyndirnar af „harmóníkufólkinu" þar sem því var smalað upp í löggubíl voru tragikómískar. Allir með harmóníkur hangandi á sér og lítandi út eins og aukaleikarar í eldgömlu leikriti um lífið á Íslandi til forna. Við höfum greinilega nóg með farfuglana sem koma hér syngjandi og kærum okkur ekkert um harmóníkufólk spilandi í hverri búð og sofandi í almenningsgörðum með harmóníkur undir haus. Við erum of upptekin við að meikaða í frábærasta landi í heimi og viljum ekki vera minnt á það með harmóníkuspili þegar við förum út í búð hversu ótrúlega heppin við erum að hafa fæðst á þessu skeri, að vera í hnattrænu samhengi fædd með silfurskeiðar í munninum. Sígaunar eru hins vegar velkomnir hingað að taka fyrir okkur lagið á Listahátíð eins lengi og þeir hafa fengið góða dóma erlendis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun