Í rjómatertukjól undir pálmatré 1. maí 2007 15:03 Fáar ef nokkrar afhafnir ástfanginna para eru jafn hallærislegar og giftingar. Það var ekki hægt að sannfærast um annað en sannindi þessarar fullyrðingar hér um árið, þegar brúðkaups-tryllingur skók landann og enginn gat gengið í hjónaband með sæmd nema því væri sjónvarpað á frístöð. Þegar góðvinkona mín sendi mér kort sem ein virtasta auglýsingastofa landsins hafði verið fengin til að hanna og bauð mér að koma í brúðkaup sitt setti mig hljóða. Ég hugsaði með mér hvernig gat staðið á því að þessi fallega og greinda stúlka gat látið plata sig út í svona vitleysu. Niðurstaðan sem ég ákvað að reyna komast niður á var að ég væri hégómleg manneskja. Broddborgaraleg hugsun mín bæri vott um sýndarmennsku meðaljónsins og þyrfti að kæfa niður, með hörku. Í brúðkaupið mætti ég því með eins galopnum huga og mér var framast unnt. Ég fékk strax ónotatilfinngu þegar brúðarvalsinn hófst og vinkonan gekk inn í stingandi hvítum kjól úr gerviefnum líkastan rjómatertu. Lögin sem sungin voru á ensku af einum þekktasta söngvara þjóðarinnar smugu í gegnum merg og bein. Kjánahrollurinn gagntók mig þegar æstur lýður henti hrísgrjónum yfir nýgifta parið sem hljóp inn í hvíta limósínu í íslensku slabbi, með pálmatré í huganum. þessi ágæta vinkona mín er nú skilin. Minningin held ég að henni þyki verri en mér. Við höfum samt ekki rætt um þetta upphátt enn. Fyrirlitningin á athöfninni hefur vaxið eins og mygla í huga mér. Hjónabandið hefur nú aftur komist í hámæli. Ástæðan er ekki sjónvarpsþáttur heldur að nokkrum prestum þykir rangt að hommar og lesbíur eigist frammi fyrir guði. Í sjálfu sér hef ég ótrúlega takmarkaðan skilning á því hvers vegna einhver vill játa ást sína í kirkju en furða mig nú samt að það sé valið að fara bókstaflega eftir þessu atriði fremur en einhverju öðru sem nefnt er í Biblíunni. Mér er svo sem alveg sama þótt fólk troði inn upplifunum sínum úr amerískum bíómyndum inn í kirkjuna eða hjónabönd sín. Mér þætti samt betra ef það sleppti því og eðlilegra að kirkjunnarmenn reyni að losa athöfnina við slíka gervimennsku. Fátt er fallegra en tvær manneskjur sem raunverulega vilja eyða ævinni saman og deila þeirri sameiginlegu ábyrgð sem hversdagleikinn býður. Það þyrfti að skerpa á því atriði í tengslum við hjónabandið. Lifi hversdagsleikinn með öllu því yndislega sem rómantískar bíómyndir segja ekki frá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karen Kjartansdóttir Mest lesið Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun