Kauprétti ekki leynt 10. mars 2007 08:30 Óskar Magnússon (til vinstri) ræddi við Sigurð Tómas Magnússon áður en hann bar vitni í Baugsmálinu. MYND/Brjánn
Engin leynd var um kauprétt þriggja æðstu stjórnenda Baugs, sem samið var um við stofnun félagsins árið 1998, sagði Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður félagsins, þegar hann bar vitni í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Óskar sagði að kveðið hafi verið á um kaupréttinn í stofnsáttmála. Auk þess hafi verið skýr ákvæði um hann í ráðningarsamningi hans, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, og Tryggva Jónssonar, þáverandi aðstoðarforstjóra. Stofnendur félagsins hafi skrifað undir ráðningarsamningana þar sem félagið hafi á þeim tíma ekki verið formlega stofnað. Forsvarsmenn Baugs töldu kaupréttarsamningana sér til tekna þegar þeir kynntu fyrirtækið sem fjárfestingarkost, sagði Óskar. Það hafi verið talið jákvætt að stjórnendur hefðu svo mikla trú á félaginu að þeir hefðu að hluta til bundið tekjur sínar góðum árangri félagsins, og það kynnt fyrir 10-30 mögulegum fjárfestum. Spurður hvort stjórn Baugs hafi vitað af kaupréttarákvæðunum, og því að þau voru að hluta til uppfyllt árið 1999, sagði Óskar að svo hafi verið. Meðal annars hafi verið fjallað um þennan nýtta kauprétt í starfslokasamningi hans, undir lok árs 1999. Samningurinn hafi verið borinn undir stjórn og hún skrifað undir.
Fréttir Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi nei-sinna „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Sjá meira