Útlit fyrir metfjölda ferðamanna í ár 30. ágúst 2006 18:00
Útlit er fyrir að met verði slegið í fjölda erlendra ferðamanna hér á landi í ár og að í kringum 400 þúsund manns sæki landið heim. Kvörtunum vegna lakrar þjónustu hefur hins vegar fjölgað í ár og hvetur ferðamálastjóri íslenska ferðaþjónustu til þess að vera á varðbergi gagnvart því. Nýjar tölur frá Ferðamálastofu sýna að aldrei hafa fleiri erlendir ferðamenn komið til landsins í einum mánuði en í júlí síðastliðnum, eða tæplega 67 þúsund. Hefur ferðamönnum sem fara um Leifsstöð fjölgað um 6,3 prósent fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þá eru ótaldir ferðamenn sem koma með Norrænu en ekki liggur fyrir hversu mikið þeim hefur fjölgað. Í fyrra komu tæplega 370 þúsund ferðamenn til landsins í flugi eða með Norrænu en útlit er fyrir að þeir verði um 400 þúsund í ár. Magnús Oddsson ferðamálastjóri segir að þar séu þeir ferðamenn sem komi með skemmtiferðaskipum ár hvert ekki teknir með í reikninginn en tekjur af þeim séu einnig töluverðar fyrir alla landsfjórðunga. Magnús segir að sem fyrr sé mest kvartað undan háu verðlagi á Íslandi en kvörtunum vegna lélegrar þjónustu hafi þó fjölgað nokkuð í ár. Hann segir að þótt fjöldi ferðamanna hafi tvöfaldast á síðustu tveimur árum geti Íslendingar ekki hallað sér aftur og haldið að hlutirnir gerist af sjálfu sér, menn verði að vera á varðbergi.
Fréttir Innlent Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Erlent Fleiri fréttir Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Sjá meira