Kosningar – hvað er í spilunum? 22. maí 2006 19:18 Dagarnir eftir kosningarnar gætu orðið spennandi hér í Reykjavík - það er ef Sjálfstæðisflokkurinn vinnur ekki hreinan meirihluta. Hér í borginni er engin hefð fyrir stjórnarmyndunarviðræðum - við höfum engan forseta til að útdeila umboði til stjórnarmyndunar. Því gæti ríkt hálfgerður glundroði dagana eftir kosningarnar - allir tala við alla, gengur á með boðum og yfirboðum. Minni flokkarnir geta gert sig ansi dýrkeypta í svona ástandi. Auðvitað er líka hugsanlegt að einhverjir séu þegar búnir að tala saman, hafi jafnvel gefið ádrátt um samstarf eftir kosningarnar. Fyrir kjósendur er þetta kannski ekki nógu sniðugt. Það væri kannski hreinlegra ef flokkarnir gæfu út fyrirfram með hverjum þeir hyggjast starfa - eða jafnvel að kjósendur gætu sýnt vilja sinn í þessu efni á kjörseðli. Sjálfstæðisflokkurinn á mikla möguleika eins og sjá má þegar spáð er í spilin. Samfylking er háð því að fá Vinstri græna með sér - það ætti varla að vera bundið vandkvæðum - en reyna svo að lokka Frjálslynda flokkinn eða Framsókn til samstarfs. En svona líta möguleikarnir út: Sjálfstæðisflokkur - hreinn meirihluti. Það getur gerst þótt flokkurinn fái alveg undir 45 prósenta fylgi.Sjálfstæðisflokkur - Frjálslyndi flokkurinn. Nokkuð líklegt. Hugsanlegt þó að Sjálfstæðismenn telji að Ólafur F. Magnússon sé erfiður í samstarfi eða að hann gerist of einstrengingslegur í stjórnarmyndunarviðræðum.Sjálfstæðisflokkur - Framsóknarflokkur. Spurningin er auðvitað hvort Framsókn nær manni inn. Sporin hræða kannski - ef til vill er Framsóknarflokkurinn ekkert alltof snokinn fyrir meira samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn en orðið er. Sjálfstæðisflokkur - Vinstri grænir. Í þætti mínum í gær útilokaði Svandís Svavarsdóttir ekki að það kæmi til greina. Styrmi Gunnarsson dreymir um þetta samstarf. Sjálfstæðisflokkur - Samfylking. Verður að teljast ólíklegt, að sumu leyti vegna stærðar flokkanna, en líka vegna þess hvað tónninn milli þeirra er oft heiftúðugur. Málefnalega er þó ekki mikill munur. Innan beggja flokkanna eru ýmsir sem telja að þetta stjórnarmynstur sé það eina sem komi til greina eftir næstu alþingiskosningar.Samfylking - Vinstri grænir - Framsókn. Þetta er R-listinn. Miðað við skoðanakannanir er ólíklegt að hann haldi meirihlutanum.Samfylking - Vinstri grænir - Frjálslyndi flokkurinn. Þessi meirihluti var mögulegur samkvæmt Gallupkönnun í gær. Þetta þýðir að Ólafur F. Magnússon er í oddastöðu og gæti orðið mjög valdamikill, til dæmis er líklegt að hann myndi reyna að stöðva alla vinnu við flutning flugvallarins. Samfylking - Vinstri grænir - Frjálslyndi flokkurinn - Framsókn. Ef allir þessir flokkar ná inn mönnum minnka líkur á því að Sjálfstæðisflokkur fái hreinan meirihluta. En hvort þetta gæti orðið starfhæfur meirihluti - það er annað mál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Raunverulegt sjálfstæði Sandra Sigurðardóttir Skoðun Ábyrg stefna í alþjóðamálum Gísli Garðarsson Skoðun
Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun
Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun