Deildu um bensínálögur 21. apríl 2006 12:01
Bensínverðshækkanir og aukin verðbólga voru í brennidepli við upphaf þingfundar í dag. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar, vísaði til þess að ríkisstjórnin hefði talað um að efnahagsástandinu hér væri best líst sem verðbólguskoti. Hann spurði hvort ekki væri réttast í því ljósi að lækka álögur á bensín til að sporna gegn áhrifum bensínverðshækkana á verðbólgu. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði að þegar ákveðið hefði verið að lækka bensínálögur áður hefði það verið vegna tímabundinnar hækkunar. Nú væri ekki útlit fyrir að hækkun eldsneytisverð gengi til baka á næstunni. Hann sagði því verða að horfa heildstætt á þessi mál og taka ákvörðun út frá því. "Heldur fannst mér snautleg viðbrögð fjármálaráðherra," sagði Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og gagnrýndi fjármálaráðherra fyrir aðgerðaleysi. Geir H. Haarde utanríkisráðherra og fyrrum fjármálaráðherra benti á að staðan gæti verið mun verri. Hann minnti á að bensínálögum hefði verið breytt úr hlutfallslegu gjaldi af bensínverði í krónutölugjald og sagði jafnframt að breytingar á olíugjaldi yrðu til þess að fleiri færðu sig yfir á dísilbíla sem væru sparneytnari en bensínbílar. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra furðaði sig á orðum Jóns Bjarnasonar og sagði að hann hlyti að vera eini græninginn í heiminum sem mælti fyrir því að álögur á bensín yrðu lækkaðar.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira