Meirihlutinn á Akureyri fallinn skv. skoðanakönnun 18. apríl 2006 19:13
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Félagsvísindastofnun gerði könnunina dagana 10.-12. apríl síðastliðinn á Akureyri vegna bæjarstjórnarkosninganna sem fram fara í vor, en hún var kynnt á borgarafundi NFS í bænum fyrr í kvöld. Þar kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkur bætir við sig tæpu prósentu frá síðustu kosningum og fengi 36,5 prósent ef kosið yrði nú. Framsóknarflokkurinn, sem starfar í meirihluta með sjálfstæðismönnum á Akureyri, tapar hins vegar talsverðu fylgi, fer úr rúmum 24 prósentum í síðustu kosningum í 14 prósent. Bæði Vinstri - grænir og Samfylkingin bæta við sig á Akureyri, Samfylkingin fer úr tæpum 14 prósentum í 22 og Vinstri - grænir úr tæpum átta prósentum í átján. Listi fólksins tapar hins vegar helmingi af fylgi sínu og mælist með tæp átta prósent. Yrðu þetta niðurstöður kosninga í vor heldur Sjálfstæðisflokkurinn sínum fjórum bæjarfulltrúum en Framsóknarflokkurinn missir tvo af sínum þremur fulltrúum og meirihlutinn er því fallinn. Samkvæmt könnuninni fengi Samfylkingin þrjá bæjarfulltrúa og bætir við sig tveimur og vinstri - grænir fengju tvo. Listi fólksins tapaði hins vegar öðrum af bæjarfulltrúum sínum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira