Vegið sé að námsmönnum með því að afnema fæðingarstyrk til maka 6. febrúar 2006 21:30 MYND/Pjetur
Sérfræðingur í norrænum málum telur vegið að námsmönnum í Danmörku með því að afnema rétt maka námsmanna erlendis til fæðingarstyrks frá Íslandi. Í bæði Noregi og Svíþjóð er heimavinnandi fólki greitt fæðingarorlof. Starfsfólk Tryggingastofnunar fer þvert gegn félagsmálaráðuneytinu með því að benda fólki á að brjóta lögheimilisskilyrði laganna. Félagsmálaráðuneytið segir rétt til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks taka mið af stöðu einstaklings en ekki pars. Sigurjón Örn Þórsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, segir breytinguna gera ráð fyrir því að allir sitji við sama borð. Ráðuneytið mat það sem svo að það ætti sér ekki stoð í lögum að halda áfram að greiða mökum námsmanna fæðingarstyrk umfram maka annarra hópa. Kvartað hefur verið til þingmanna vegna málsins og skýrsla verið send til landamæraskrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar. Eftir kvörtun frá Sambandi íslenskra námsmanna erlendis endurskoðar félagsmálaráðuneytið nú málið. Sigurjón segir enduskoðunina lúta að því að skoða með hvaða hætti breytt framkvæmd hafi komið niður á einstaka hópum sem eigi rétt á greiðslum úr sjóðnum. Dæmi eru að starfsfólk Tryggingastofnunar geri hvað það geti til að leiðbeina fólki um hvernig komast megi hjá þessu ákvæði. Bent er á þann möguleika að flytja lögheimili ekki úr landi eða flytja lögheimili makans aftur til Íslands. Þannig fara starfsmenn Tryggingastofnunar gegn ráðuneytinu, sem segir nauðsynlegt að flytja lögheimili samfara flutningum erlendis. Sigurjón segir að með því njóti fólkið þeirrar þjónustu sem viðkomandi ríki bjóði upp á. Ráðuneytið mæli ekki með því að fólk sé með lögheimili á Íslandi en búi í Danmörku. Aðspurður hvað gerist ef annar aðilinn hafi lögheimili áfram á Íslandi en þeir búi báðir í útlöndum segir Sigurjón hugsanlegt að úrskurðað verði um lögheimili viðkomandi. Það lögheimil fylgi búsetu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira