Kristinn kommi og María mey 25. janúar 2006 12:02 KRISTINN H. GUNNARSSON Gunnar segir að Kristinn og fleiri sem gengið hafi í Framsóknarflokkinn úr Alþýðubandalaginu hafi lagt mikið á sig við að reyna að breyta flokknum þannig að hann fari nær þeirra gömlu stefnu. Fyrir vikið hafi þingmaðurinn hrakist út á kant í flokknum og eigi sér vart viðreisnar von, því það þurfi meira en gamla komma til að halda aftur Framsóknarflokknum í því að þróast til framtíðar. MYND/GVA
Fulltrúi í miðstjórn og sveitarstjórnarmaður Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar vill að Kristinn H. Gunnarsson, samflokksmaður hans, segi af sér þingmennsku. Mælirinn sé einfaldlega fullur. Sveitarstjórnarfulltrúinn kallar Kristin komma, en líkir honum jafnframt við Maríu mey. Kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi fór fram á dögunum og þar voru á meðal ræðumanna Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, og Kristinn H. Gunnarsson þingmaður. Gunnar Bragi Sveinsson, sem bæði er sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknarflokksins í Skagafirði og á sæti miðstjórn hans, fjallar um þingið í pistli á heimasíðu Bæjarins besta. Þar segir hann að skugga hafi borið á þingið vegna ræðu Kristins því hann hafi farið í bakið á formanninum, þar sem Halldór hafi flutt sína ræðu daginn áður og því ekki viðstaddur til að verja sig. Gunnar segir mælinn nú vera orðinn fullan; Kristinn hvítþvoi sig af erfiðum málum flokksins en komi svo með geislabauginn þegar eitthvað vinsælt sé í gangi, og hann geti ekki endalaust komist upp með að leika Maríu mey, enda ekki heiðarlegt gagnvart þeirri ágætu konu. Gunnar segir að Kristinn og fleiri sem gengið hafi í Framsóknarflokkinn úr Alþýðubandalaginu hafi lagt mikið á sig við að reyna að breyta flokknum þannig að hann fari nær þeirra gömlu stefnu. Fyrir vikið hafi þingmaðurinn hrakist út á kant í flokknum og eigi sér vart viðreisnar von, því það þurfi meira en gamla komma til að halda aftur Framsóknarflokknum í því að þróast til framtíðar. Þá segir Gunnar að Kristinn sé áhrifalaus þingmaður, og bætir reyndar við að þingmennirnir Jón Bjarnason og Sigurjón Þórðarson séu það einnig. Því eigi hann að gefa þingsæti sitt laust, sé honum annt um kjördæmi sitt. Og Gunnar lýkur pistli sínum á eftirfarandi orðum: Við þurfum þingmenn sem mark er tekið á því einungis þeir ná fram málum. Áfrifalausir þingmenn ná engu fram.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Sjá meira