Bæjarstjóri sækist ekki eftir sæti á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ 14. janúar 2006 12:17 Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ. MYND/GVA
Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa ekki ákveðið hvort núverandi bæjarstjóri, verði bæjarstjóraefni flokksins vegna sveitastjórnarkosninga í vor. Prófkjör flokksins þar í bæ er haldið í dag í fyrsta sinn í tæpa þrjá áratugi og er bæjarstjórinn ekki í framboði. Síðan ákveðið var að efna til prófkjörs hefur félögum í Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar fjölgað úr 1300 í 2134 eða um rúm 60%. Prófkjörið hófst klukkan 10 í morgun í félagsheimili sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ og lýkur klukkan 18 í kvöld. Ásdís Halla Bragadóttir lét af embætti bæjarstjóra í fyrravor þegar hún tók við starfi forstjóra BYKO. Gunnar Einarsson tók þá við starfi bæjarstjóra. Gunnar er ekki einn þeirra 12 sem sækist eftir 7 sætum á lista flokksins fyrir kosningarnar. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, þeir Erling Ásgeirsson og Páll Hilmarsson en báðir sitja þeir nú í bæjarstjórn Garðabæjar. Hins vegar vekur nokkra athygli að forseti bæjarstjórnar, Laufey Jóhannsdóttir, sækist ekki eftir því að leiða listann, heldur stefnir hún á annað sæti. Jón Guðmundsson, formaður fulltrúaráðs flokksins í Garðabæ, segir ekki ákveðið hvort Gunnar verði bæjarstjóraefni flokksins í kosningunum eða einhver af listanum. Það verði fulltrúaráðið og þeir sem fái sæti á listanum sem ákveði það í byrjun febrúar. Samkvæmt prófkjörsreglum flokksins þarf helmingur skráðra félaga í Sjálfstæðisfélaginu í Garðabæ að taka þátt í prófkjörinu svo það verði bindandi, einnig þarf hver frambjóðandi að fá helming greiddra atkvæða í tiltekið sæti svo kosning sé bindandi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira