Íslendingur liggur á gjörgæslu eftir líkamsárás í Lundúnum 20. nóvember 2006 07:00
Íslendingur á fertugsaldri liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Lundúnum eftir að ráðist var á hann í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar í Lundúnum var maðurinn á ferð við Arnold Circus í austurhluta borgarinnar þegar þrír karlmenn réðust á hann um klukkan hálfsjö í gærmorgun. Ekki er ljóst hvort vopn voru notuð í árásinni en hvorki var um skot-árás né hnífstungu að ræða. Árásarmennirnir flúðu af vettvangi og leitar lögregla þeirra. Íslendingurinn var fluttur á nálægt sjúkrahús og liggur þar á gjörgæsludeild. Að sögn Sigurðar Arnarsonar, sendiráðsprests í Lundúnum, bíða aðstandendur mannsins fregna af líðan hans, en hún er óstöðug. Ástæður að baki árásinni eru alls ókunnar. „Það er leitt að segja það en Lundúnir eru sextán milljóna manna borg og fregnir af svona árásum eru ekki óalgengar,“ segir Sigurður. „Það er hræðilegt þegar svona kemur fyrir og við vonum öll að hann nái sér.“ Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu, en hann býr og starfar í Lundúnum.Gatan þar sem ráðist var á manninn, Arnold Circus, er í austurhluta borgarinnar, um tvo kílómetra norðan við Tower of London. Yfir þrjú þúsund Íslendingar búa á Bretlandseyjum, þar af um þúsund í Lundúnum.
Innlent Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Fleiri fréttir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Sjá meira