62 prósent borgarbúa vilja fremur Vilhjálm 3. nóvember 2005 07:30
Sextíu og tvö prósent borgarbúa vilja heldur sjá Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson í fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna í næstu borgarstjórnarkosningum en Gísla Martein Baldursson samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir stuðningsmenn Vilhjálms. Prófkjör sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor hefst formlega á morgun og stendur einnig á laugardag, en utankjörstaðaratkvæðagreiðsla hefur staðið frá 18. október. Samkvæmt könnuninni vilja 62 prósent Reykvíkinga að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verði oddviti sjálfstæðismanna í kosningunum en 38 prósent treysta betur keppinauti hans um forystusætið, Gísla Marteini Baldurssyni. Þá leiðir könnunin í ljós að 54 prósent þeirra sem telja líklegt að þeir taki þátt í prófkjörinu vilja fremur að Vilhjálmur verði í forystusætinu, en tekið skal fram að af rúmlega átta hundruð manns sem svöruðu telja aðeins um 200 líklegt að þeir taki þátt í prófkjörinu. Á kjörskrá eru á bilinu 16 til 17 þúsund manns. Samkvæmt skoðanakönnuninni nýtur Vilhjálmur meiri hylli bæði meðal kvenna og karla en Gísli Marteinn, en 59 prósent kvenna vilja frekar að Vihjálmur leiði lista sjálfstæðismanna og 65 prósent karla. Þá nýtur Vilhjálmur meira fylgis meðal allra aldurshópa nema 16-24 ára og fer stuðningur við Vilhjálm vaxandi með hækkandi aldri kjósenda. Skoðanakönnunin var gerð dagana 5.-31. október, úrtakið voru Reykvíkingar á aldrinum 16-75 ára og svarhlutfall 62 prósent.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira