Öryggisráðsframboði ekki mótmælt 17. október 2005 00:01
Ekki var ályktað gegn framboði Íslands í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær, þrátt fyrir tilraunir ungra sjálfstæðismanna í þá átt. Fyrrverandi formaður flokksins gerði það svo að einu af sínum síðustu verkum að hvetja til að róttæk ályktun um afnám ríkisstyrkja í landbúnaði yrði felld. Fyrir fundinum lágu drög að ályktun um utanríkismál þar sem ekki var vikið beinum orðum að umdeildu framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna heldur sagt að Íslendingar hefðu hingað til ekki skorast undan ábyrgð í samfélagi þjóðanna og því sé mikilvægt að slíku starfi sé haldið áfram. Fyrir fund þótti einsýnt að þessari málsgrein yrði breytt enda Ungir Sjálfstæðismenn nýbúnir að álykta gegn framboði Íslands til Öryggisráðsins og nýkjörinn formaður búinn að lýsa því yfir að hans fólk myndi berjast fyrir því að samskonar ályktun gegn framboðinu yrði samþykkt. Eftir talsverðar umræður innan nefndarinnar náðist þó sátt um málamiðlunarályktun þar sem bætt var inn setningu þar sem sagt var að hér eftir sem hingað til þyrfti að gæta aðhalds og ráðdeildar í fjárútlátum til utanríkismála og gæta fyllsta hófs í kostnaði við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Tillögu um að skýra þurfi betur stefnu Íslands og væntanleg markmið innan öryggisráðsins var vísað til miðstjórnar. Athygli vakti að tillaga nokkurra ungra sjálfstæðismanna um afnám hvers kyns ríkisstyrkja og tollamúra í landbúnaði var felld eftir að Davíð Oddsson, fráfarandi formaður flokksins, sté í ræðustól og hvatti menn til að stíga varlega til jarðar í þeim efnum. Tillagan sem kom seint fram var svo felld. Ungir Sjálfstæðismenn voru annars sáttir við sinn hlut á landsfundinum að sögn formanns þeirra, Borgars Þórs Einarssonar, sem segir tillögur ungliðanna hafa náð fram að mestu leyti.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira