Ósammála um breytingar í Óshlíð 9. október 2005 00:01
Meirihluti bæjarstjórnar Bolungarvíkur hefur lýst yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hefja rannsóknarvinnu vegna jarðganga um Óshlíðarveg. Hefur meirihlutinn meðal annars átt í samstarfi við Vegagerðina um öryggismál á veginum. "Þar er stillt upp nokkrum valkostum, þar á meðal jarðgangavalkostum sem við hefðum viljað fara," segir Elías Jónatansson, formaður bæjarstjórnar í Bolungarvík. Hann segir meirihluta bæjarstjórnar hafa viljað fylgja leiðbeiningum Vegagerðarinnar um að fara með jarðgöng í gegnum Óshyrnu. Minnihluti bæjarstjórnar Bolungarvíkur gagnrýnir hins vegar harðlega vinnubrögð meirihlutans í málinu og er ósammála því að best sé að gera göng um Óshlíð. "Við erum mjög jákvæð fyrir jarðgangagerð en ekki um Óshlíð," segir Soffía Magnúsdóttir, fulltrúi minnihlutans í bæjarstjórn. "Við teljum að það hafi komið fram svo háværar raddir um að skoða aðra möguleika, að fara fram Syðridal og inn í Vestfjarðagöngin Tungudalsmegin. Við höldum að þetta sé ekki rétt leið en við getum ekki metið það heldur viljum við fá fagaðila til að skoða þetta úr því að þau gleðitíðindi bárust frá ríkisstjórn að hún liti nú vestur og vildi setja þetta fjármagn." Hún telur enn margar snjóflóðahættur ef farin verður sú leið sem Vegagerðin leggur til.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira