Fáir vinir einkabílsins 9. október 2005 00:01
Einkabíllinn á sér enga vini. Þá ályktun má í það minnsta draga af mætingu á stofnfund vinafélags einkabílsins, sem haldinn var í dag. Fimmtán sátu fundinn, sem stóð í kortér. Í lok árs 2003 voru um 190 þúsund bílar af öllum gerðum skrásettir hér á landi. Í Reykjavík teljast umferðarteppur nánast daglegt brauð. Sumum þykir hreinlega ekki tekið nægilegt tillit til allra þessara bíla og ökumanna þeirra, meðal annars þeim sem efndu til fundar á hótel Sögu í dag. Þar átti að stofna vinafélag einkabílsins, vinsælasta farartækis borgarbúa. Vinir einkabílsins eru ekki margir, miðað við mætinguna. Sextán sátu í salnum og hlýddu á framsögu Eggerts Ólasonar, sem eftir fjórtán mínútna fund var kjörinn formaður félagsins með lófataki. Hann stendur því í fylkingarbrjósti í baráttunni fyrir.. hverju? "Það er að minnka þessa skattpíningu sem er á einkabílum og greiða fyrir umferðinni, þá fyrst og fremst með því að búa til betri stofnbrautir og nýta þær sem við eigum betur," segir Eggert. Hann segir samtökin ekki tengjast neinum stjórnmálaflokkum beinlínis. "Sjálfur hef ég verið flokksbundinn í Sjálfstæðisflokknum og er í framboði í prófkjöri flokksins í borginni."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Fleiri fréttir Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Sjá meira