Vill hætta við skattalækkanir 8. október 2005 00:01
Formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, vill hætta við skattalækkanir sem ríkisstjórnin hefur boðað til og nota þá fjármuni til að lækka matarskattinn sem hefði áhrif á vísitölu neysluverðs. Á fundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í dag sagði Ingibjörg Sólrún að meintur stöðugleiki væri ekki jafn mikill og af væri látið. Hátt gengi og aukin verðbólga vegi að undirstöðum íslensks samfélags og skuldir íslenska þjóðarbúsins séu meiri en í nokkru öðru OECD ríki. Í ljósi þessa hyggst Samfylkingin leggja fram tvær þingsályktunartillögur á Alþingi strax eftir helgi. Önnur fjallar um breytingar á skattaálögum. "Það er í fyrsta lagi að hætta við skattalækkanirnar sem ríkisstjórnin boðar núna í fjárlagafrumvarpinu," sagði Ingibjörg Sólrún. "Hætta við þær skattalækkanir eins og þær birtast okkur og nota þá sex milljarða sem áttu að að fara í skattalækkanirnar til að lækka matarskattinn úr fjórtán prósentum í sjö prósent. Sú aðgerð ein kostar um fjóra milljarða. Það sem sú aðgerð gerir og skiptir máli, er að hún hefur áhrif á vísitölu neysluverðs og lækkar hana um tæpt prósent og hefur þannig áhrif á verðbólguna, dregur úr þrýstingnum á verðbólguna." Hin þingsályktunartillagan fjallar um íslensku krónuna. "Ég tel að það sé ástæða til að skoða það hvort íslenska krónan fái í raun staðist sem sjálfstæður gjaldmiðill og hvort sjálfstæð peningastjórn á þessu litla svæði sem Ísland er fái staðist.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Sjá meira