Fjárlagafrumvarp fær falleinkunn 5. október 2005 00:01
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands eru sammála um að forsendur kjarasamninga séu brostnar. Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands gefur fjárlagafrumvarpinu falleinkunn. Hannes Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur áhyggjur af verðbólguspám síðustu daga og segir forsendur kjarasamninga vera brostnar. Hann segir að samkvæmt spánum verði fjögurra prósenta verðabólga ár eftir ár en eins og vitað sé séu verðbólgumarkmið ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans 2,5 prósent. Kjarasamningar sem gerðir hafi verið til fjögurra ára byggist á þeirri forsendu að verðbólgan sé í kringum markmiðið. Ef verðbólgan sé fjögur prósent séu samningar í sjálfu sér í uppnámi og taka þurfi þá til endurskoðunar. Hannes segir ekki bara áhyggjuefni núna að verðbólgan sé yfir þeim mörkum sem forsendur kjarasamninga segja til um og bendir á að sama staða eigi eftir að koma upp í nóvember á næsta ári lækki verðbólgan ekki. Hann segist hafa vænst meira aðhalds í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þar sé að finna viðleitni til aðhalds en það dugi hvergi nærri til. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, er einnig á því að forsendur kjarasamninga séu brostnar. Hann segir fjárlagafrumvarpið ekki hjálpa til við þá vinnu sem fram undan er. Gylfi segir verðbólguna einfaldlega alltof mikla miðað við þær forsendur sem kjarasamningar geri ráð fyrir og verið sé að hefja vinnu við endurskoðun kjarasamninga en henni þurfi að ljúka fyrir 15. nóvember. Fjárlögin sem lögð hafi verið fram á mánudaginn sé ekki til að auðveld vinnuna. Gylfi gefur fjárlagafrumvarpinu falleinkun og segir ógæfumerkjum í efnahagsmálum ekki vera sinnt. Honum sýnist að allir aðilar, ASÍ, Seðlabankinn, Samtök atvinnulífsins, greiningardeildir bankanna, alþjóðastofnanir eins og OECD og Alþjóðabakninn, bendi á að stjórnvöld sinni ekki þeirri skyldu sinni að skapa í gegnum ríkisfjármálin þá festu sem þurfi til né heldur að skapa þann trúverðugleika gagnvart almenningi að hagsmunum hans sé borgið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira