Bæjarstjórn Bolungarvíkur klofin 5. október 2005 00:01 MYND/Brynjar Gauti
Bæjarstjórn Bolungarvíkur er klofin í afstöðu sinni til vegbóta á veginum um Óshlíð. Meirihluti stjórnarinnar lagði fram bókun á fundi bæjarstjórnar í vikunni þar sem ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá því nýverið, um að hefja rannsóknarvinnu vegna jarðganga um Óshlíðarveg, er fagnað. Minnihluti bæjarstjórnar tók ekki undir þessa bókun heldur lagði fram aðra sem gagnrýnir harðlega vinnubrögð meirihlutans í málinu og vill að göng verði lögð á öðrum stað en um Óshlíðina. Vill minnihlutinn frekar að farið verði í gangagerð um Syðridalsbotn en göngin myndu þá tengjast Vestfjarðagöngunum svokölluðu. Á annað þúsund undirskriftir hafa safnast á vegum samtakanna „Við viljum jarðgöng“ en þar er þess farið á leit að leið minnihlutans verði frekar farin en Óshlíðarleiðin. Minnihlutinn lýsir jafnframt undrun sinni á því að forseti bæjarstjórnar Bolungarvíkur, Elías Jónatansson, hafi ásamt Kristni H. Gunnarssyni, þingmanni Framsóknarflokks og íbúa í Bolungarvík, fundað með Vegamálastjóra án vitundar og heimildar bæjarstjórnarinnar. Segir í bókun minnihlutans að þar sem talsverður tími hafi liðið milli funda hafi verið eðlilegt að kalla bæjarstjórn saman fyrir fundinn með Vegamálastjóra. Þessu hafnar meirihlutinn sem segir að greint hafi veirð frá fundinum á fyrsta bæjarráðsfundi eftir fundinn með þingmanninum og Vegamálastjóra.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira