Hafi ekki fengið syndakvittun 30. september 2005 00:01
Stjórnarandstæðingar segja af og frá að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafi fengið syndakvittun, þrátt fyrir að umboðsmaður Alþingis kanni ekki að eigin frumkvæði, hvort ráðherra hafi verið vanhæfur þegar kom að sölu Búnaðarbankans. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-hreyfingarinnar - græns framboðs, segir að með spurningum sínum til forsætisráðuneytisins hafi umboðsmaður Alþingis sett athugun á hvort rétt hafi verið staðið að sölu Búnaðarbankans í farveg á nýjan leik. Steingrímur segir það engu breyta þó umboðsmaður hafi ekki ákveðið að kanna hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra með hliðsjón af eignarhlut hans í einu fyrirtækjanna sem keyptu Búnaðarbankann. Umboðsmaður velti upp spurningum sem beri það með sér að menn hafi í raun ekki staðið nógu vel að málum. Spurt sé hvort til standi að skýra lögformlega og stjórnskipunarlega stöðu einkavæðingarnefndar og ráðherranefndar um einkavæðingu, hvor setja eigi reglur þar um og við hvaða hæfisreglur hafi verið stuðst. Halldór Ásgrímsson sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær, að fyrst umboðsmaður Alþingis sæi ekki forsendu til að kanna hæfi hans við sölu Búnaðarbankans stæði niðurstaða Ríkisendurskoðanda að hann væri ekki vanhæfur óhögguð. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, er á annari skoðun og segir ekki hægt að túlka ákvörðun umboðsmanns svo að hann álíti forsætisráðherra hafa hreinan skjöld. Hann sjái líka í bréfi umboðsmanns að hann vilji skoða ákveðna ferla í málinu og þótt hann taki fram að hann ætli ekki inn í fortíðina þá gefi það tilefni til þess að draga þá ályktun að umboðsmanni hafi ekki þótt allt eðlilegt í málinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði svo í Bylgjufréttum í gær að umræðunni um einkavæðinguna og hvernig að henni hafi verið staðið væri ekki lokið og sagði forsætisráðherra enga syndarkvittun hafa fengið. Hún sagði þó að líklega yrði ekki komist lengra með þennan þátt málsins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira