Framboð verði með minni kostnaði 30. september 2005 00:01
Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi náð samstöðu um að standa við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinu þjóðanna en að það verði gert með minni tilkostnaði. Geir gekk á fund utanríkismálanefndar klukkan ellefu í morgun, til að tilkynna nefndinni um afstöðu sína í málinu en áður hafði málið verið rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Geir segir að ríkisstjórnin hafi einsett sér að spara verulegar fjárhæðir frá því sem áður var ráðgert með því að fara öðruvísi í málið. Því verði fylgt eftir af hófsemd sem hafi einkennt vinnubrögð Íslendinga á alþjóðavettvangi, ekki verði gerðir út sérstakir sendiherrar til að kynna málið en reynt verði að vinna það á vettvangi SÞ í New York og draga úr ferða- og risnukostnaði sem þessu gæti fylgt. Aðspurður hversu miklum fjármunum ríkisstjórnin muni þá verja til framboðsins segir Geir að framboðið sjálft á næstu þremur árum geti kostað um 210 milljónir, en þær tölur séu þó ekki endanlegar. Svo fari þetta eftir því hvort Ísland komist í öryggisráðið en kostnaður við setuna gæti orðið 100 milljónir króna hvort ár sem setið er í ráðinu. Aðspurður hvort þessi ákvörðun hafi áhrif á möguleika Íslands til að hljóta sætið segir Geir að hann telji svo ekki vera. Þetta sé alvöruframboð og Íslendingar muni axla þá ábyrgð sem fylgi setunni í ráðinu ef á reyni. Þetta verði gert af fullkominni hógværð eða látleysi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira