Opna tilboð í eignir og skuldir LL 30. september 2005 00:01
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mun í dag opna tilboð í eignir og skuldir Lánasjóðs landbúnaðarins í viðurvist allra bjóðenda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Ákveðið var á Alþingi í vor að selja allar eignir sjóðsins og semja um yfirtöku skulda hans, en frá 20. júní síðastliðnum hefur framkvæmdanefnd um einkavæðingu að annast undirbúning sölunnar. Í júlímánuði auglýsti framkvæmdanefnd um einkavæðingu eftir þátttöku í forvali til útboðs á eignum og skuldum sjóðsins, en í auglýsingunni voru tilgreind skilyrði þau er þátttakendur þurftu að uppfylla til að koma til greina við forval. Þann 12. ágúst tilkynnti framkvæmdanefndin svo að fimm aðilar hefðu lagt inn umsókn til þátttöku í útboðinu og þar af hefðu þrír aðilar - Íslandsbanki , Kaupþing banki og Landsbanki Íslands uppfyllt öll skilyrði nefndarinnar til frekari þátttöku. Þann 26. ágúst, að undirritaðri trúnaðaryfirlýsingu, voru þátttakendum í útboði afhent útboðsgögn þar sem meðal annars var að finna ítarlega lýsingu á fyrirkomulagi sölu. Þá hafa upplýsingafundir verið haldnir með þátttakendum og þeim veittur frekari aðgangur að gögnum í húsakynnum Lánasjóðs landbúnaðarins á Selfossi. Gert er ráð fyrir að hæsta verð ráði við mat á tilboðum, en framkvæmdanefnd um einkavæðingu áskilur sér þó rétt til að hafna öllum tilboðum, reynist þau óásættanleg. Þá gerði ferlið ráð fyrir að kaupsamningur yrði unninn jafnhliða í söluferlinu og liggur hann fyrir og hefur verið sendur þátttakendum í útboði í lokadrögum. Ekki er gert ráð fyrir frekari samningaviðræðum eftir að tilboð verða opnuð. Gert er ráð fyrir undirritun kaupsamnings í næstu viku og að greiðsla eigi sér stað við afhendingu á hinu selda, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Fleiri fréttir Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Sjá meira