Ógnuðu starfsfólki með hnífum 22. september 2005 00:01
Vopnað rán var framið í Laugarnesapóteki um klukkan tvö í dag. Tveir menn vopnaðir hnífum ógnuðu starfsfólki og vitorðsmaður þeirra beið í bíl skammt frá og komst hann tímabundið undan. Fjórir starfsmenn voru við störf þegar ræningjarnir æddu öskrandi inn með hnífa á lofti. Starfsmenn flúðu út utan einn sem lét ræningjana fá það sem þeir báðu um, en það var lyf og peningar. Lögreglan hafði fengið tilkynningu um bíl í nágrenni lyfjaverslunarinnar skömmu fyrir ránið. Bíllinn þótti grunsamlegur því breitt hafði verið yfir númeraplötuna.Lögreglan kom til að aðgæta bílinn en í þann mund komu ræningjarnir út úr apótekinu. Í bílnum sat vitorðsmaður ræningjanna. Borgarar í nágrenninu hjálpuðu til við handtöku á tveimur ræningjanna en bílstjórinn komst undan og keyrði upp í Lágmúla. Þar fór hann úr bílnum en tveir lögreglumenn voru þar staddir og tóku hann fastan. Laugarnesapótek er við hliðina á barnaskóla og má segja að börn hafi verið í nokkurri hættu vegna atburðarins. Mennirnir hafa allir komið áður að afbrotum. Þeir eru nú í haldi lögreglu og verða brátt yfirheyrðir.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Sjá meira