Geir frekar fylgjandi framboðinu 17. október 2005 23:43
Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert athugavert við ummæli fosætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um að Íslendingar væru í framboði til Öryggisráðsins. Yfirlýsingin hafi verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. Gerð var kostnaðaráætlun fyrir framboðið í ráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar og hljóðaði hún upp á sex hundruð milljónir. Davíð Oddsson segist óttast að þegar ákvörðun liggi endanlega fyrir að henni verði ekki breytt og þá geti það gerst þegar kosningabaráttan harðni að tilhneigingin verði að leggja frekar meiri peninga í þetta en minni. Hann kveðst hafa óttast að framboð bæði Tyrklands og Austurríkis myndi hleypa aukinni hörku í kosningabaráttuna með tilheyrandi kostnaði. Hann hafi því látið fara þess á leit við Austurríkismenn að þeir yrðu seinna í rununni til að reyna að eyða óvissu um að mörg hundruð milljónir fari út um gluggann, þ.e. ef Ísand kæmist svo ekki inn í Öryggisráðið. Þrír starfsmenn hafa verið við störf fyrir Ísland á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, lengst af frá 1980. Einn bættist við árið 2001 og annar 2003, beinlínis í tengslum við fyrirhugað framboð til Öryggisráðsins. Hvert stöðugildi kostar um það bil þrjátíu fjörutíu milljónir á ári þannig að um tvö hundruð milljónum hefur verið varið til framboðsins nú þegar. Davíð segir ekkert athugavert við ummæli Halldórs Ásgrímssonar á þingi Sameinuðu þjóðanna. Það sé ríkur vilji innan ríkistjórnarinnar hjá „mörgum sterkum ráðherrum“ að fara þessa leið og hann geti sætt sig við það, enda eigi hann ekki að ráða þessu þar sem hann sé á síðustu metrunum í pólitík. Yfirlýsingin hafi líka verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. „Hann hefur jafnframt, sem skiljanlegt er - hann er fjármálaráðherra - viljað leita leiða hvort það væri hægt að gera það með ódýrari og hagkvæmari hætti. En hann verður auðvitað að tjá sig um það,“ segir Davíð.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Fleiri fréttir Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Sjá meira