Vill þétta lista sjálfstæðismanna 18. september 2005 00:01
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Með framboði sínu vill hann þétta lista flokksins en telur ekki ástæðu til stórtækra breytinga. Júlíus Vífill hefur mikið velt fyrir sér að bjóða sig fram í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á móti þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Gísla Marteini Baldurssyni og freista þess að verða borgarstjóraefni flokksins. Í gær var Júlíus Vífill enn að gera upp hug sinn en í dag er niðurstaðan annað sætið þar sem hann fer fram á móti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem þegar hefur tilkynnt um framboð sitt. Júlíus segist hafa sagt fyrir nokkrum vikum að hann myndi gefa kost á sér í eitt af forystusætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi prófkkjöri sem sé eftir sex vikur. Menn hafi innt hann eftir hvaða sæti hann hafi ætlað að sækjast eftir og það hafi glatt hann mikið að margir hafi hvatt hann til að taka þátt í slagnum um fyrsta sætið. Það hafi hann hugleitt mjög mikið og meðal annars vegna þess hafi dregist hjá honum að lýsa yfir hvað hann hygðist gera. Aðspurður hvað hafi komið til að hann ákvað að gefa ekki kost á sér í fyrsta sætið segir Júlíus að með tilliti til þess að staða borgarstjórnarstjórnarflokksins nú sé mjög sterk hafi hann hugsað að það væri kannski ekki ástæða til þess að gera stóra uppskurði og kannski að sjálfstæðismenn ættu að hugleiða það. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi gefur kost á sér í þriðja sætið og enn sem komið er veitir enginn honum samkeppni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Myrtu fjörutíu manns í kirkju Erlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira