Bætir engu við yfirlýsingu sína 18. september 2005 00:01
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, lætur skila því gegnum aðstoðarmann sinn að hann hafi engu við yfirlýsingu sína á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna að bæta um framboð Íslands til öryggisráðsins. Þar sagði Halldór í ræðu að framboð Íslands stæði. Halldór, sem er í fríi í Bandaríkjunum, segir að afstaða ríkisstjórnarinnar sé skýr og yfirlýsing sín hafi verið gefin eftir samráð við verðandi utanríkisráðherra, Geir Haarde. Efasemdarraddir hafa verið háværar innan stjórnarflokkanna upp á síðkastið en í Fréttablaðinu í dag segir Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, að vandinn sé sá hvernig fjölmiðlar fjalli um málið og að stjórnarandstaðan sé að reyna að búa til alvarlegan ágreining milli stjórnmálaflokkanna. Þó sagði Hjálmar í fréttum í gær að það væru skiptar skoðanir um málið innan þingflokksins. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, talaði um ágreining í stjórnarliðinu. Hann sagðist telja að miðað við þá stöðu að Einar Oddur væri kominn í stjórnarandstöðu og að Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefði skipt um skoðun eða væri efins væri málið í talsverðu uppnámi í stjórnarflokkunum. Í pistli á heimasíðu sinni segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra að nú gangi forystumenn Framsóknarflokksins fram fyrir skjöldu og telji óvissu ríkja um málið. Þó sjái hann ekki að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafi getað sagt annað um framboðið á 60 ára afmælisfundi Sameinuðu þjóðanna en hann gerði. Björn Bjarnason segist telja meiri áhættu felast í því að hverfa frá ákvörðuninni sem var tekin 1998 en að halda fast í hana. Með því að snúa við blaðinu væri gefin yfirlýsing um að Ísland treysti sér ekki til annars en standa á hliðarlínunni í alþjóðastjórnmálasamstarfi, segir Björn Bjarnason og spyr: „Væri skynsamlegt fyrir stjórnvöld að gefa slíka yfirlýsingu á sama tíma og lögð er áhersla á útrás á öllum sviðum?“
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira