Stjórn kvennahreyfingar valin 17. september 2005 00:01
Bryndís Friðgeirsdóttir var í dag valinn formaður nýrrar kvennahreyfingar innan Samfylkingarinnar sem stofnuð var í Hveragerði í dag. Með Bryndísi í stjórn verða Ragnhildur Helgadóttir, Sigrún Stefánsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir, en auk þess mun þingflokkur Samfylkingarinnar skipa eina konu í stjórnina. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum kemur m.a. fram að kvennahreyfingin leggi áherslu á að auka áhrif kvenna jafnt innan Samfylkingarinnar sem í samfélaginu öllu. Hreyfingin telji mikilvægt að nýta þau sóknarfæri sem staða kvenna innan Samfylkingarinnar skapi: Formaður flokksins og þingflokksins séu konur, konur séu helmingur þingmanna Samfylkingarinnar, fjölmennar í sveitarstjórnum og kona gegni starfi borgarstjórans í Reykjavík. Þá telur kvennahreyfingin að enn sé verk að vinna á fjölmörgum sviðum. Afnám misréttis í launum, barátta gegn kynferðislegu ofbeldi og fjölgun kvenna hvarvetna þar sem ráðum sé ráðið eigi að vera forgangsmál þeirra sem vilja jafna stöðu kynjanna. Nýlegar samantektir og kannanir sýni svo ekki verði um villst að enn sé langt í land hvað varðar að staða, völd og áhrif kvenna sé viðunandi í íslensku samfélagi. Þá telur kvennahreyfinging brýnt, í ljósi þess að sveitarstjórnarkosningar eru fram undan, að konur séu virkir þátttakendur og gerendur í stjórnun sveitarfélaga líkt og í landsstjórninni. Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar sé ætlað að vera bakland og vettvangur kvenna sem taka þeirri áskorun að starfa sem fulltrúar Samfylkingarinnar á þessum vettvangi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Sjá meira