Gefur ekki kost á sér 8. september 2005 00:01
Eftirfarandi yfirlýsing hefur borist frá Björk Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa: "Frá vorinu 2002, er ég var kjörin í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlistann, hef ég lagt mig fram um að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum borgarbúa. Minn helsti vettvangur hefur verið velferðarmál og málefni leikskóla og tel ég margt hafa áunnist. Sérstaklega vil ég nefna efldan stuðning við börn efnalítils fólks, fjölgun félagslegra leiguíbúða og upptöku sérstakra húsaleigubóta fyrir þá verst stöddu á húsnæðismarkaði. Á meðal annarra verkefna má nefna bætta heimaþjónusta og endurhæfingarúrræði fyrir þá sem lengi hafa búið við lökustu lífsgæðin. Frá síðustu áramótum hef ég ennfremur gengt stjórnarformennsku hjá Strætó bs. sem staðið hefur í mestu umbótum í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu sem ráðist hefur verið í. Það voru mér mikil vonbrigði er Vinstri hreyfingin-Grænt framboð ákvað að halda ekki áfram Reykjavíkurlistasamstarfinu, sem þó voru allar forsendur fyrir. Þannig er þeirri hættu boðið heim að atkvæði félagshyggjufólks nýtist illa í komandi borgarstjórnarkosningum, samherjum verði att saman og sérhyggjuöflunum greidd leið til valda. Vegna ákvörðunar Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs í Reykjavík hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér í prófkjöri VG vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor. Ekki er um málefnalegan ágreining að ræða enda sýna þau mikilvægu verkefni sem ég hef unnið að á síðustu árum að þau málefni sem Vinstri hreyfingin-Grænt framboð stendur fyrir eru mér afar mikilvæg baráttumál. Því er hins vegar ekki að leyna að grundvallarágreiningur er um aðferðir til að ná fram pólitískum hugsjónum okkar. Ég mun að sjálfsögðu starfa áfram að borgarmálum í borgarstjórnarflokki Reykjavíkurlistans, það sem eftir er kjörtímabilsins. Ég óska einskis frekar en að félagshyggjan fái brautargengi í komandi kosningum og að félagshyggjuöflin í borginni nái að starfa saman eftir borgarstjórnarkosningarnar í vor."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira