Íslenskukennsla flyst til Mímis 2. september 2005 00:01
Námsflokkar Reykjavíkur, sem heyra undir menntasvið Reykjavíkurborgar, munu skrifa undir þriggja ára þjónustusamning um íslenskukennslu fyrir útlendinga sem búsettir eru í Reykjavík, við Mími-símenntun í dag. Þá tekur samningurinn einnig til þróunar kennsluhátta í íslensku fyrir útlendinga. Námsflokkar Reykjavíkur hafa boðið útlendingum upp á íslenskukennslu í yfir áratug en á síðustu árum hafa um 700 útlendingar að jafnaði sótt námskeiðin. Með þjónustusamningnum, sem undirritaður verður í dag, tekur Mímir að sér kennslu þessa hóps en Mímir fær til liðs við sig kennara sem hafa starfað hjá Námsflokkunum og nýtir það námsefni sem þar hefur verið þróað. Gerður Óskarsdóttir, sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar, segir nánast alla kennara sem sinntu þessu starfi hjá Námsflokkunum hafa verið ráðna hjá Mími við sömu vinnu. Hún segir kennsluhætti vera í mikilli þróun og að hluti af samningum felist í samvinnu margra aðila að þróun kennsluhátta en auk Mímis og Námsflokkanna mun Kennaraháskólinn koma þar inn sem einn aðili vinnsluferlisins. Þá er möguleiki á að Alþjóðahúsið taki þátt í vinnunni sem og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og fleiri. Björg Árnadóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur, segir námsmenn geta sótt sömu ef ekki betri þjónustu með nýja fyrirkomulaginu en námsráðgjafar verða staðsettir í þjónustumiðstöðvunum sem eru á fimm stöðum í borginni. Þá segir hún vilja til að auka samstarf við framhaldsskólana til að auðvelda fullorðnu fólki af erlendu bergi brotnu að hefja nám þar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Sjá meira