Fagnar afstöðu í flugvallarmálinu 1. september 2005 00:01
Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, segir það stórtíðindi að Sjálfstæðismenn hafi tekið afdráttarlausa afstöðu til flugvallarins í Vatnsmýrinni. Hann fagnar viðsnúningi Sjálfstæðismanna, sem hafi dregið lappirnar í málinu hingað til. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, hefur nú lýst því yfir að hann vilji Reykjavíkurflugvöll burt úr Vatnsmýrinni og hann vill að íbúða- og atvinnubyggð rísi þar í staðinn. Aldrei áður hefur forystumaður innan Sjálfstæðisflokksins tekið svo afdráttalausa afstöðu gegn flugvellinum, en Vilhjálmur sækist eftir fyrsta sæti á lista Sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, segir viðsnúning Sjálfstæðismanna í flugvallarmálinu athyglisverðan, og hann sé í rökréttu framhaldi af því að meirihlutinn í borgarstjórn hafi beint málinu í þann farveg að leysa það, með hagsmuni Reykjavíkur, innanlandsflugsins og landsbyggðarinnar að leiðarljósi. Dagur segir skipulagsráð hafa verið í ágætu sambandi við samgönguráðuneytið um málið og hann benti á að Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hefðu lengi dregið lappirnar og hann sagði það því mjög mikil tíðindi að Vilhjálmur væri búinn að taka afstöðu. Einnig benti hann á að Sjálfstæðismenn vildu heldur flýta þessu en ekki og það mun því alls ekki standa á Reykjavíkurlistanum að vinna hratt og örugglega í þessu þannig að tekið sé tillit til allra sjónarmiða.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira