Reyndi að stytta sér aldur 29. júlí 2005 00:01
Karlmaður sem sennilega er ættaður frá Alsír reyndi að stytta sér aldur þegar starfsmenn alþjóðadeildar Ríkislögregustjóra birtu honum í gær þann úrskurð að hann fengi ekki hæli hér á landi sem pólitískur flóttamaður. Þetta átti sér stað í gistiheimili þar sem maðurinn hefur dvalið í nokkra mánuði eftir að hann kom hingað til lands. Þegar það rann upp fyrir manninum að það ætti að vísa honum úr landi greip hann til eldhússhnífs og reyndi að skera sig á púls en náði ekki að rjúfa slagæðar vega bitleysis í hnífnum. Hann kastaði honum þá frá sér, greip brúsa með kveikjarabensíni, hellti innihaldinu í skyndingu yfir sig og ætlaði að fara að kveikja í með kveikjara sem hann hafði á sér. Lögreglumenn sprautuðu þá á hann úr maze-brúsa og við það stilltist hann. Var hann síðan fluttur á lögreglustöðina í Keflavík þangað sem læknir kom og skolaði úr augum hans og hann fékk að skola af sér í sturtu, áður en hann var fluttur á heilsugæslustöðina þar sem gert var að skrámum á úlnliðum hans eftir eldhúshnífinn. Hann var síðan vistaður í fangageymslu lögreglunnar í Reykjavík í nótt og hélt utan til Spánar í morgun í fylgd tveggja lögreglumanna en þar var hann búinn að sækja um hæli áður en hann kom til Íslands.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira