Engin hrossakaup um málskotsrétt 9. júlí 2005 00:01
Össur Skarphéðinsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórnarskrárnefnd, telur sig bundinn af samþykkt landsfundar flokksins um málskotsrétt forseta Íslands. "Fyrir mína parta kemur ekki til greina að gera hrossakaup um þetta á þá lund að slíkt ákvæði yrði tekið upp gegn því að málskotsréttur forsetans yrði afnuminn. Margir stjórnarliðar vilja afnema þennan rétt forseta. Ég lít svo á að með samþykkt landsfundar Samfylkingarinnar, sem tók beinlínis á þessu, sé illgerlegt fyrir mig að hnika frá því," segir Össur. Í stjórnmálayfirlýsingu landsfundarins frá því í maí segir meðal annars, að skilgreina þurfi stöðu og umboð forsetans skýrar í stjórnskipan landsins og standa vörð um málskotsréttinn. Jón Kristjánsson, formaður stjórnarskrárnefndar, hefur sagt um endurskoðunina að ræða þurfi kreppuna sem upp kom í tengslum við fjölmiðlalögin í fyrra og hugsanlega þjóðaratkvæðagreiðslu. "Þar skorti fordæmi og engin ákvæði að finna í stjórnarskránni um hvernig ætti að framkvæma slíka atkvæðagreiðslu." Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórnarskrárnefnd, segir að ákvæðið um synjunarvald forseta þarfnist endurskoðunar óháð því hvaða niðurstöðu menn vilji ná fram. "Það er ekki heppilegt að hafa ákvæði í stjórnskipunarlögum sem kallar á jafn ólíkar og umdeildar skýringar og fram komu á síðasta ári. Í þessari stjórnarskrárvinnu þurfa menn því að eyða þessum vafa," segir Birgir. Hann segir jafnframt að reglurnar verði að vera þannig að þær framkalli ekki deilur í samfélaginu um grundvallaratriði.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Sjá meira