Gagnrýna samtryggingu stjórnmála 21. júní 2005 00:01
Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, harma hvernig staðið er að skipun sendiherra fyrir Íslands hönd og segja ljóst að samtrygging íslenskra stjórnmálamanna liggi í sumum tilvikum þvert á flokkslínur. Hér er beinlínis vísað til þess að Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið skipaður sendiherra Íslands í Svíþjóð. Andrés Jónsson, formaður ungra jafnaðarmanna, segir þá ekki hrædda við að segja það upphátt að siðvæðing í íslenskum stjórnmálum sé tímabær. Þeir telji að auglýsa eigi störf sendiherra eins og önnur störf þannig að breiðari hópur sinni slíkum störfum, bæði fólk sem starfað hafi í utanríkisþjónustunni, menntamenn og fólk úr fjármálalífinu ásamt stjórnmálamönnum. Ungir jafnaðarmenn telji hins að þetta samtryggingarkerfi þar sem þeir flokkar sem eru við völd skipi sína menn í flestöll sendiherraembætti en einn og einn úr öðrum flokkum sé einnig skipaður beri merki þess að stjórnmálamenn tryggi hver öðrum þessi störf. Aðspurður hvort Guðmundur Árni Stefánsson hefði ekki átt að þiggja sendiherrastöðu í Svíþjóð segir Andrés að hann geri ekki athugasemd við það. Þetta snúist ekki um persónu Guðmundar Árna heldur vilji ungir jafnaðarmenn að kerfinu verði breytt. Næsta kynslóð stjórnmálamanna verður að gæta þess að taka ekki upp sömu ósiði og hin, að því er virðist, óforbetranlega kynslóð stjórnmálamanna sem nú stýrir för á Alþingi Íslendinga, segir í ályktun framkvæmdastjórnar ungra jafnaðarmanna. Annaðhvort beri að auglýsa stöðurnar eða láta hina pólitískt skipuðu fulltrúa víkja á sama tíma og þeir hverfa frá völdum sem skipuðu þá.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira