Ekki nauðsyn að afturkalla leyfi 20. júní 2005 00:01
Skipulagsstofnun telur ekki nauðsynlegt að afturkalla starfsleyfi vegna álversins í Reyðarfirði nema nýtt umhverfismat gerbylti forsendunum fyrir því. Skipulagsstofnun komst á sínum tíma að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti nýtt umhverfismat fyrir álver í Reyðarfirði eftir að Norsk Hydro hætti við framkvæmdirnar og Alcoa tók við verkefninu. Umhverfisráðherra staðfesti þá niðurstöðu en Hæstiréttur ógilti hana og verður nýtt umhverfismat að fara fram. Alcoa verður því að vinna nýja matsskýrslu og verður tillaga að henni væntanlega lögð fram fljótlega. Umhverfisstofnun og Fjarðabyggð, sem gáfu út starfsleyfið, sjá ekki ástæðu til að fella það úr gildi þrátt fyrir dóm Hæstaréttar. Ásdís Hlökk Hökuldsdóttir, aðstoðarskipulagsstjóri Skipulagsstofnunar, segir stofnunina ganga út frá því að nýtt umhverfismat fyrir verksmiðjuna fari fram algjörlega óháð því að það liggi fyrir leyfi og þegar niðurstaða matsins liggi fyrir verði það tekið upp og endurskoðað eftir atvikum. Aðspurð hvort ekki beri að stöðva framkvæmdirnar í ljósi þess að nú verði að fara fram nýtt mat segist Ásdís ekki sjá að svo sé en hún telji að það sé fyrst og fremst leyfisveitendanna að taka afstöðu til þess. Ef einhverjir telji að svo sé þurfi þeir að beina máli sínu þangað. Ásdís segir starfsleyfið hafa verið veitt á grundvelli heilmikilla upplýsinga og það kunni að vera að það komi fram breyttar forsendur þegar ný matsskýrsla liggi fyrir en þá verði að endurskoða starfsleyfið. Það hafi komið fram að Umhverfisstofnun telji ekki tilefni til þess að fella leyfið úr gildi á þessari stundu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Sjá meira