Andstaða við brottflutning vex 9. júní 2005 00:01
Andstaða við brottflutning gyðinga frá Gasasvæðinu fer vaxandi meðal almennings í Ísrael og palestínsk stjórnvöld gagnrýna hvernig að honum er staðið. Það eina sem Ariel Sharon virðist geta huggað sig við er að Hæstiréttur í Ísrael lagði blessun sína yfir fólksflutningana í dag. Með úrskurði Hæstaréttar var síðustu formlegu hindruninni rutt úr vegi svo áform Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, um að flytja landnema af Gasasvæðinu ættu að ná fram að ganga. Þar búa níu þúsund gyðingar innan um eina og hálfa milljón Palestínumanna en landnemabyggðirnar hafa verið helsta ágreiningsefni Palestínumanna og Ísraela. Fólkið verður m.a. flutt til sjávarbyggðar í Nitz-anim og í dag voru menn í óða önn við að reisa hin nýju heimkynni. Fyrir Hæstarétti var deilt um það hvort brotið væri á réttindum þeirra gyðinga sem verða hraktir af Gasasvæðinu þegar flutningarnir hefjast í ágúst næstkomandi. Aðeins einn af tólf dómurum taldi svo vera. Átök hafa blossað upp á Gasasvæðinu og Vesturbakkanum að undanförnu. Og ekki leit það friðvænlega út á Vesturbakkanum í dag þegar ísraelskum hermönnum lenti saman við Palestínumenn sem mótmæltu varnarmúr Ísraela á hermundu svæðinunum. Þó blæs ekki byrlega fyrir Sharon þessa dagana en úrskurður Hæstaréttar í dag kemur í kjölfar skoðanakannana sem sýna að stuðningur við flutningana minnkar stöðugt. Til að byrja með voru 70 prósent Ísraela þeim hlynntir en nú tæpur helmingur. Margir gyðingar álíta að svæðið tilheyri þeim, samkvæmt biblíulegum skilningi, og með brottflutningnum sé verið að umbuna palestínskum hryðjuvekramönnum. Ísraelska þingið verði því að hverfa frá áætlunum sínum. Og það er ekki bara heima fyrir sem Sharon sætir gagnrýni. Palestínsk stjórnvöld saka Ísraelsstjórn um að gefa ekki nægilegar upplýsingar um hvernig standa eigi að flutningunum og bæði Ísraelar og Palestínumenn óttast árásir herskárra Palestínumanna þegar dregur að tímamótunum.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira