Rækjan nærri hruni fyrir vestan 7. júní 2005 00:01
Rækjustofninn veiðist vart lengur á Íslandsmiðum og er nánast hruninn í Ísafjarðardjúpi. Hafrannsóknarstofnunin leggur til að upphafsafli úthafsrækju verði minnkaður um þriðjung á næsta fiskveiðiári. Í nýrri skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um nytjastofna sjávar og aflahorfur á næsta fiskveiðiári er gert ráð fyrir að rækjuveiðar á grunnslóð norðan lands verði áfram í lágmarki eða jafnvel engar á næstu vertíð en mikil þorsk- og ýsugengd hefur verið fyrir norðan undanfarin ár. Samkvæmt mælingum Hafró er rækjustofninn í Arnarfirði undir meðallagi og í Ísafjarðardjúpi er hann nánast hruninn. Er þetta talið stafa af aukinni þorskgengd og hefur afli verið nokkuð sveiflukenndur. Hið sama er að segja um rækjustofninn í Skagafirði og í Húnaflóa, en í fyrra fannst nær engin rækja í innanverðum Húnaflóa. Engin rækjuveiði var í norðanverðum Breiðafirði í fyrra og hitteðfyrra og á miðunum við Snæfellsnes hefur afli verið lítill undanfarin ár. Lagt er til að upphafsafli á miðunum við Snæfellsnes verði 200 tonn á næsta fiskveiðiári. Hvað úthafsrækjuna varðar þá gerir Hafrannsóknarstofnunin ráð fyrir að stofninn minnki á næstu árum,en það er þó háð því hversu mikil þorksgengd verður á rækjuslóð í framtíðinni. Búist er við að þorksgengd á rækjumiðunum verði svipuð í ár og hún var í fyrra og að óbreytt sókn leiði því til 15 þúsund tonna afla á næsta fiskveiðiári. Samkvæmt niðurstöðum úr stofnmælingu úthafsrækju árið 2004 er stærð árganganna 2000, 2001 og 2002 yfir meðallagi en þar sem mikið hefur verið um þorsk þykir óvíst hvort stofnstærð rækju haldist óbreytt á fiskveiðiárinu 2005 til 2006. Stofnunin leggur til að upphafsafli úthafsrækju fyrir næsta fiskveiðiár verði 10 þúsund tonn, eða tveir þriðju af hámarksafla yfirstandandi fiskveiðiárs.
Fréttir Innlent Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira