Verkaskipting óljós í dýravernd 5. júní 2005 00:01
Dýraverndunarmálum hefur sáralítið verið sinnt á Íslandi í áratugi vegna slæmrar stjórnsýslu og óljósrar verkaskiptingar. Unnið hefur verið að úrbótum síðustu árin. Framkvæmd dýraverndunarlaganna var áður hjá einstaka lögreglustjórum sem sáu um stjórnsýsluna og héraðsdýralæknum sem sáu um eftirlitið en var fellt undir Umhverfisstofnun þegar hún varð til. Sigurbjörg Gísladóttir, forstöðumaður hjá Umhverfisstofnun, segir framkvæmd leyfisveitinga hafi verið með mjög mismunandi hætti eftir landshlutum og þannig undir hælinn lagt hvort dýrahald væri leyfisskylt eða ekki. Þegar um er að ræða slæma meðferð eða vanhirðu á búfé tekur málið til búfjárlaga en almennra dýraverndunarlaga þegar um gæludýr er að ræða eða gæludýrahald í atvinnuskyni. Þegar dýrahald var ekki háð leyfi var erfitt að fylgja eftir brotum á dýraverndunarlögum að mati eftirlitsaðila og því skorti tilfinnanlega úrræði til að fylgja málum eftir. Þessi mál hafa þó verið að færast til betri vegar. Eitt af því sem fellur undir dýraverndunarlög er flutningur á sláturfé í sláturhús. Oft er um að ræða langa flutninga eftir vondum vegum, sérlega eftir að sláturhúsum fækkaði til muna, en eingöngu 18 sláturhús eru á landinu. Samkvæmt lögum fellur flutningur á dýrum undir dýraverndunarlög og á Umhverfisstofnun því að fylgjast með að lögunum sé framfylgt. Staðreyndin er hins vegar sú að yfirdýralæknar sinna slíku eftirliti og hafa alla tíð gert enda starfa dýralæknar í sláturhúsunum sjálfum. Þeir hafa hins vegar ekki skýrar lagaheimildir eða þvingunarúrræði til að bregðast við endurteknum brotum. Bæði forsvarsmenn Umhverfisstofnunar og yfirdýralæknis hafa ítrekað óskað eftir breytingum án árangurs.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira