Vísar gagnrýni borgarstjóra á bug 28. maí 2005 00:01
Leiðtogi sjálfstæðismanna í Reykjavík vísar alfarið á bug gagnrýni borgarstjóra á hugmyndir þeirra um framtíðarskipulag í borginni. Þær byggist hvorki á hugmyndum annarra né leiði til hærra lóðaverðs. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna, segir að gagnrýni borgarstjóra á hugmyndir sjálfstæðismanna um framtíðarskipulag í borginni sé fráleit. Steinunn Valdís Óskarsdóttir beri saman vatn og olíu þegar hún fullyrði að þeir hafi að ákveðnu leyti gert tillögur annarra að sínum. Steinunn sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að hugmyndir sjálfstæðismanna væru mjög í anda þess sem R-listinn hefði bent á. Hugmyndir um Örfirisey hefðu t.d. verið kynntar sem trúnaðarmál í hafnarstjórn á sínum tíma og greinilegt væri að þeir gerðu þær að sinni tillögu nú. Því fagnaði hún. Vilhjálmur segir sjálfstæðismenn hafa unnið að framtíðarsýn fyrir Reykjavík lungann úr kjörtímabilinu og stofnaður hafi verið hópur vegna þess fyrir einu og hálfu ári. 16. júní í fyrra hafi fjórir arkitektar lagt fram hugmyndirnar um byggð í Örfirisey, Akurey og Engey. Borgarstjóri fari því með hrein ósannindi. Vilhjálmur segir enn fremur að það séu nákvæmlega tveir mánuðir í dag síðan honum hafi verið kynntar sem hafnarstjórnarmanni hugmyndir um ákveðna íbúðauppbyggingu í Örfirisey, þe.a.s. að breyta þar atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Svo tali R-listinn um að þetta séu hugmyndir hans en það sé ekki rétt. Hugmyndirnar hafi komið utan úr bæ frá hagsmunaaðilum og fasteignafyrirtækjum. Borgarstjóri sagði líka að framtíðarskipulag sjálfstæðismanna leiddi til hærra lóðarverðs ef það yrði að veruleika. Vilhjálmur mótmælir því og segir að ef eitthvað gerist þá lækki fasteignaverð. Fasteigna- og lóðaverð í Reykjavík sé orðið óheyrilega hátt og hafi hækkað um mörg hundruð prósent á síðustu fjórum árum. Lóðaverð hjá höfninni hafi ávallt verið lægra en hjá borginni og samt hafi það verið innheimt í samræmi við kostnað hafnarinnar af landfyllingum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Fleiri fréttir Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Lítilsvirðandi að segja að uppsagnirnar muni ekki bitna á þjónustu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Illa lagður pallbíll upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Sjá meira